Blogga?
Já, hvernig væri að fara að blogga smá? Það er nú það. Já, ég veit ekki. Ég hef alveg nóg að gera. Ekki það að það að (vá) blogga fyrir ykkur, elskurnar mínar, sé ekki mikilvægt. Neinei. Þegar ég er ekki að læra, þá langar mig að: Prjóna (já, ég kláraði peysuna hans Gústa, nú á bara eftir að ganga frá lausum endum og setja rennilásinn í, en það er ekki eins skemmtilegt), spila Transport Tycoon Delux (giv mí a breik, ég hef ekki orðið háð tölvuleik síðan The Sims var nýr)... já, það er þetta sem ég geri í frítíma mínum. En þegar ég sá að einhver actually las síðuna mína, þrátt fyrir það að það væri rúmur mánuður frá síðasta bloggi, hugsaði ég með mér að nú væri lag að blogga smá. Here goes. Já, það sem er að gerast í mínu lífi: Ég er, eins og flestir vita og fá að heyra allhressilega þegar ég djamma, að læra táknmálsfræði í HÍ. Það gengur barasta alveg svakalega vel hingað til og mér finnst það alveg hreint sérlega gaman. Ég er enn í Óperukórnum í Reykjavík eeeen ákvað að taka mér frí það sem eftir er þessarar annar. Þess í stað mun ég fá að njóta þess að fara á tónleika í Febrúar þegar þau flytja Carmina Burana. Ég tók mér frí til þess að geta hjálpað einni mömmu sem á tvær dætur sem eru að verða blindar og heyrnarlausar. Þær eru alger yndi, alveg hreint stórkostlegar!!! Þegar ég sá að þessi vinna yrði ekki nógu mikil til að geta séð mér fyrir u.þ.b. því sem ég þarf á mánuði sótti ég um vinnu á frístundaheimili og bað sérstaklega um að fá að vera í Hlíðaskóla þar sem þar eru börn sem nota táknmál. Ooooog stuttu seinna var hringt í mig og konan lýsti því yfir að hún myndi nú barasta alveg ráða mig bara í gegn um símann en það væri nú ekki úr vegi að hittast. Ég var einmitt í staffapartýi í gær. Svaka gaman. Í sumar verð ég í mánuð, já mánuð, í Kosta Ríka með Gústa, Björgu, Erik og pabba til að heimsækja föðurfjölskyldu Eriks og skemmta okkur og slappa af, en einnig til að taka upp allavega tvær heimildamyndir. Við fljúgum til New York 31. maí og komum heim via NY 2. júlí. Hafiði það sem allra, allra best, börnin mín. Sjáumst :)
skrifað af Runa Vala
kl: 14:02
|